Dagný Finns
    <language>is</language>
Aloha!
      <description>já kæru vinir ég er á lífi,er bara búin að liggja í bloggdvala í góðan tíma  Það er svosem búið að vera nóg að gera á þessum bæ, sinna hinum og þessum störfum sem maður er búin að koma sér í.Síðustu helgi fórum við með 7 og 8 flokk á akureyri á vormót KA sem var bara ótrúlega gaman og litlu ormarnir mínir stóðu sig alveg ótrúlega vel.Mikið af mínum tíma uppá síðkastið hefur farið í það að undirbúa morgundaginn sem verður frábær.Við ætlum að slútta vetrarstarfinu hjá KS með sprelli á sparkvellinum og grillveislu á eftir.Síðan verður farið heim og skellt sér í eurovision dressið og græjað sig fyrir eurovisionpartýið  Held að stór vinur okkar hann Sakis verði mjög ofarlega í ár jafnvel standi uppi sem sigurvegari..  </description>
jollý jollý...
      <description>Jæja þá er ég mætt aftur  Búin að taka mér gott frí frá blogginu, en það gæti tekið mig svolitla stund að koma mér í gírinn aftur en ég geri mitt besta.Nóg hefur verið að gera síðan ég bloggaði síðast,jólin komu og fóru allt of fljótt,Sigga systir kom heim og það var alveg yndislegt að fá litlu skvísuna heim í nokkra daga.Nú janúar flaug áfram sem betur fer,var ekki beint skemmtilegur þar sem mikil óvissa var hvort að ég fengi karlinn hingað aftur eða ekki, en hann er að koma og aðeins 12 dagar í hann  Nóg er um að vera í febrúar og er mikil tilhlökkun fyrir þorrablóti karlakórsins sem verður 14 febrúar og ætlum við skvísurnar í saumaklúbbnum að skella okkur á tjúttið. jæja ég ætla að láta þetta duga í bili, reyni að koma með lengri færslu næst  </description>
jóla,jóla,jóla.....
      <description>eftir að ég heyrði auglýsinguna með Pétri Jóhanni þá sönglar þetta endalaust í höfðinu á mér jóla,jóla,jóla..... hahaha bara snilldar auglýsingar.  Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði eitthvað inn á þessa blessuðu síðu mína, hef ekki verið í stuði til að blogga, ekki það að ég hafi ekki eitthvað að segja hef bara ekki gefið mér tíma í þetta því að það hefur verið miklu meira en nóg að gera í desember hjá mér.Búið er að þrífa og baka fyrir jólin. Hugsa að jólatréinu verði bara skellt upp í kvöld..Þarf reyndar að fara að koma mér í það að skrifa jólakort en ég er bara ekki að nenna því og svo á ég líka eftir að versla nokkrar jólagjafir. Reyni að klára það bara í vikunni, nenni ekki að vera á hlaupum á þorláksmessu að reyna að finna eitthvað.Ég skellti mér á jólagleði Metrostav um helgina með karlinum og það var bara virkilega gaman, góður matur og svo var dansað fram eftir nóttu.                                                                             skelli inn myndum fljótlega  Annars held að ég hafi þetta ekki lengra í bili og reyni að fara og gera eitthvað hérna í vinnunni  </description>
Dugnaður
      <description>er búin að vera voðalega ofvirk síðustu daga,svona fyrir utan þetta vanalega fara í blak og badmington. þá er ég búin að vera dugleg að fara í göngutúr líka, við systur fórum í jólakorta söluna eitt kvöldið í síðustu viku og það gekk líka svona rosalega vel kláruðum allt.Nú við fengum til okkar þjálfara í blakið og var tekin klukkutími í blaki á föstudagskvöldið, skellti mér svo í konfektgerð.Laugardagurinn var tekin snemma eins og vanalega mætt út í íþróttahús kl 10 á æfingu með yngstu krökkunum. Svo tók við 3 tíma blakæfing sem endaði svo með smá móti. Strembin en virkilega skemmtilegur dagur sem endaði svo á hitting á Torginu í gærkvöldi.Ekki entist ég nú lengi var farin heim fyrir miðnætti alveg búin á því, fór bara snemma að sofa og vaknaði líka svona eldhress í morgun og ákvað að baka smákökur ótrúlegur dugnaður á þessum bæ.Núna bíð ég bara eftir því að klukkan verði 3 þá verður skellt sér í fótbolta.</description>
Komin helgi
      <description>enn og aftur.Alveg merkilegt hvað þessi blessaður tími er fljótur að líða.Nóg hefur verið að gera alla vikuna,á mánudaginn skelltum við systur okkur í jólakorta stúss með "systrum" okkar í systrafélaginu  sem var svona líka rosalega gaman drógum meðalaldurin niður um nokkuð mörg ár þegar við gengum þarna inn  Eitthvað lítið hefur farið fyrir badminton þessa vikuna þar sem að meðspilarnir mínir eru allar hálf fatlaðar þessa dagana.Vonandi verða þær í betra standi í næstu viku.Kellan skellti sér á aðalfund hjá ks í gær ákvað nú að sýna smá lit þar sem að maður er nú að þjálfa og það fór þannig að ég er komin í stjórn takk fyrir! ritari og formaður barna og unglingaráðs.Það verður bara spennandi að takast á við þetta vona ég  Rósa skvísa er að renna í bæinn og ætlum við skvísurnar að skella okkur út á morgun komin tími á að við gerum eitthvað saman.En þangað til næst.......... </description>
Still alive!
      <description>nóg er búið að vera að gera hjá mér síðustu vikurnar að ég hef bara ekki einu sinni nennt að skella hér inn nokkrum línum.En ég skal reyna að bæta úr því en ég lofa engu  Eins og ég sagði hef ég haft nóg að gera,þjálfa,stunda blakið og badminton.Búin að taka herbergið Sylvíu í gegn mála það og gera voðalega fínt,fékk svo pabba til að hjálpa mér að hengja upp spegil,kertastjaka og vínrekka inn í stofu,bíð bara spennt eftir því að hann detti í gírinn og setji flísarnar í eldhúsið hjá mér  Fórum í smá ferðalag um daginn byrjuðum ferðina á að fara til Akureyrar með Sylvíu til tanna og bílinn á verkstæði, brunuðum þaðan til Reykjavíkur ekki beint skemmtilegt að keyra þetta.En á föstudeginu var mætng kl 10 í Turninn á 20 hæð þar sem ég fór á Sveitarfélagaráðstefnu Maritech ásamt vinnufélugum mínum, það eyddum veið deginum að hlusta á nýjungar sem þeir eru að bjóða uppá.Bauð Sylvíu í bíó og út að borða á föstudagskvöldið og fórum svo að hjálpa Erlu að skreyta ormakökuna fyrir 1 árs afmælið Ólivers.Afmælisveislan var svo á laugardeginum og eftir að hafa gúffað aðeins í sig kíktum við aðeins í búðir.Matarboð var svo hjá Báru á laugardagskvöldinu. Brunað var svo heim á sunnudeginum.En um síðustu helgi var haldin saumaklúbbur hjá Guðrúnu Sif, það var sko löngu komin tími á hitting hjá okkur, erum búnar að vera lengi að koma okkur í gírinn aftur eftir sumarfrí en núna er allt komið á fullt og buðum við tveim skvísum með okkur þeim Dagmar og Rönnu. Vona bara að þær hafi nú skemmt sé vel með okkur hinum og það verður bara gaman þegar að við hittumst næst.Sunnudagurinn var frekar strembin þar sem að ég vakti nánast alla nóttina og beið eftir karlinum sem var væntanlegur um kl 7 en nei þeir voru ekki mættir fyrr en að ganga kl 08:30en um það leyti var ég komin yfir þreytuna enda búin að vera á fótum síðan kl 9 á laugardagsmorguninn  jæja ég hef þetta ekki lengra í bili ætla að fara að koma mér í badminton.......er líka búin að skella inn nokkrum myndum frá helginni </description>
komin  tímin á smá færslu.
      <description>er ekki komin tími á smá færslu eða hvað?Við mæðgur skelltum okkur þann 20 ágúst til Hollands að heimsækja Siggu, vorum þar í 11 daga,skemmtum okkur rosalega vel hefðum reyndar ekki slegið hendinni á móti smá meiri sól þá hefðum við kannski sleppt nokkrum búðarferðum  en við hengum nú ekki bara í búðum allan tíma þótt svo að kannski megnið af tímaum hafi farið í það. En við skelltum okkur í einhvern fjölskyldugarð með litlu skvísurnar sem Sigga er að passa og hittum þar gæjann hennar siggu og "fóstur" syni hennar   og vin hans.Svo fórum við nokkrum sinnum til Den Haag reyndar aðalega til að skoða í búðir,fórum líka í bíó þar á mamma mía. Búðirnar í Rottendam voru þræddar líka. Amsterdam var heimsótt tvisvar og í fyrra skiptið hittum við Marji og Mel og fóum með þeim í túristasiglingu um borgina sem var bara fínt en samt ekki mikið meira en það. Svo skildu leiðir okkar og við sigga og sylvía fórum rölt um miðbæinn og rákumst þar á draugahúsið The Amsterdam Dungeon það var ákveðið að skella sér þangað, okkur leist nú ekkert á þetta fyrst héldum að við kæmumst ekki heilar út úr þessu en svo var þetta ekkert svo hræðilegt eftir fyrsta atriðið þarna.En í sinni heimsókninni til Amsterdam þá var farið og skoðað vaxmyndasafnið Madame Tussauo og létum allar gera vaxmót af höndunum á okkur.Hefði svo sem verið til í að fara og skoða meira en það verður bara að bíða þar til næst.Nú við fórum líka í þennan fína dýragerð í Rottendam með litlu skvísurnar sáum þar fíla,ljós,sebrahesta,apa og fullt af öðrum dýrum en ég sem var svo spennt að sjá gíraffana en svæðið þeirra var bara autt og við skildum ekkert hvað stóð á miðanum þannig að engir gíraffar í þessari ferð.Heimferðin var bara mjög fín þar sem að ég var með smá surprice hitti þar fólk á vellinum sem átti ekki vona á að sjá mig þar þannig að það var bara gaman.Nú svo varð ég 30 ára þann 6 september og hélt nú uppá það í Kiwanes húsinu, ótrúlega vel heppnað kvöld og allir skemmtu sér bara vel (að ég held).Annars er allt bara í gúddý hérna hjá okkur, ég tók að mér að þjálfa 8 og 7 flokk í fótboltanum í vetur það verður bara gaman, svo komst ég inn í blak "mafíuna" það er tvisvarí viku svo fer badminton að byrja líka og það er líka tvisvar í viku þannig að það verður nóg að gera hjá mér,þar sem að ég er líka búin að skrá mig í tölvunám.Karlinn farin út í 4 vikur þannig að það er fínt að hafa nóg að gera svo að tíminnn verði fljótari að líða  Stefnan er svo tekin á akureyri í dag eftir vinnu með skvísunum önnu hernínu og bryndísi við ætlum að skella okkur á námskeiðið mínus í plús....núna er komin tími til að læra að spara... ekki veitir af í kreppunni. Hver verður gestur nr 20000  </description>
Heima er best
      <description>við mæðgur er komnar heim eftir 11 daga dvöl í Hollandi hjá Siggu.skelli inn myndum og smá ferðasögu inn eftir helgi </description>
Summerholiday!
      <description>þá er maður loksins komin í sumarfrí  er búin að vera algjör haugur alla þessa viku bara hanga glápa á ólympíuleikana og dúlla mér.Náði reyndar að draga Önnu Hermínu og Danielu með mér í berjamó í vikunni.... heppin ég að þær eru ekkert sérlega hrifnar af berjum þannig að ég fékk bara að eiga það sem að þær týndu Svo er afmælið Sylvíu í kvöld loksins gafst tími til að halda upp á afmælið hennar hélt samt að ég þyrfti að fresta því í 10 skiptið. Afmælið átti að byrja kl 18:30 í kvöld svo um kl 17:20 fer ég nú að spá í það hvort að Sylvía ætli ekki að fara að skila sér heim(hún fór í óvissuferðalag með ömmu sinni og afa á þriðjudaginn og ætluðu að koma heim seinni partinn í dag) þannig að ég ákvað að hringja nú í þau og kanna hvar þau væru stödd. Enginn svaraði þannig að ég hringdi í Lindu og hún sagði að þau væru bara að veiða rétt fyrir utan Akureyri og kæmu ekkert fyrr en um 7 eða hálf 8... þannig að ég hringdi í skvísurnar og lét þær vita að afmælið seinkaði um klukkutíma.Hringir svo Sylvía í mig áðan voða róleg bara að dúllast með ömmu sinni og afa í bónus og spyr hvort að ég hefi verið að reyna að ná á þeim, stelpurófan var búin að gleyma því að afmælið ætti að byrja kl 18:30 ....alveg ótrúleg.Svo er planið að fara í héðnsfjörð á morgun í berjamó og svo er staffadpartý á bíóinu anað kvöld þar sem að Jón Ingi og Danni ætla að kokka dýrindis mat handa okkur.Brunað verður síðan suður á sunnudagsmorguninn og síðan er það Holland á miðvikudaginn að hitta hana Siggu mína, og ætlum við að vera þar í 11 daga.</description>
Grófuskarðshnjúkur og Hólshyrna
      <description>já verið þið sæl, ég sem ætlaði að vera voða öflug og koma með skýrslu eftir helgina 4-6 júlí. Hef ekki verið í stuði til að blogga, en sú helgi heppnaðist rosalega vel árgangsmótið gekk vel og fengum við sól og blíðu eins og við vorum búin að panta.Við Anita skelltum okkur í göngutúr í blíðunni um daginn ætluðum að fara upp í Hvanneyrarskál en þar sem að það var svo gott veður þá ákváðum við að fara aðeins lengra og markmiðið var sett upp á toppin fyrir ofan snjóflóðavarnargirðingarnar sem sagt upp á grófuskarðshnjúk  ótrúlega duglegar.Síðan í gær þá var ákveðið að ganga upp á hólshyrnu og lögðum við af stað um hádegi ég,anita,sandra,sylvía og steinunn, við ákváðum að fara leiðina upp hólsdalinn sem gekk bara þokkalega vel,fórum reynar alveg ótroðnar slóðir  með nokkrum stoppum,nestispásu og hælsæris vandamáli þá vorum við komnar upp rúmlega kl 15                  Allar búnar að reima skóna og tilbúnar í gönguna                           Fyrsta hindruninn var að fara yfir þessa á                        Svo þurftum að fara í gegnum þetta lúpínuland            Á erfiðri göngu þarf maður að fá sér smá skvettu af fjallavatni.                       Svo var breytt út teppi og fengið sér nesti.Anita var með það á hreinu hvað ætti að gera ef við skyldum sjá ísbjörn.                    En við sáum bara tvær rollur í fjarska                Við mæðgur alveg að verða komar upp á hólshyrnuna.                                      Skvísurnar komnar á toppinn                   Og við komumst líka á toppinn                                                  Fjörðurinn fallegi.Sylvía fékk svo mikið hælsæri að hún þurfti að labba á sokkunum smá spöl                          Þá var komið að því að fara niður  frekar bratt að sjáog það var bratt því við Sylvía urðum að renna okkur á rassinum niður það brattasta.                              Leiðin var svo nokkuð góð eftir brattann.    Sandra var orðin svo svöng eftir fjallgönguna að hún fékk sér bara sveppi Þegar göngunni var að ljúka þá réðust á okkur geitungar og stungu okkur allar nema Sylvíu.....Anita var reyndar stungin á leiðinni upp helv........flugur.Og það var mikil gleði þegar við sáum þennan................loksins </description>
Sumarblíða
      <description>eða hitt og heldur  Það lítur ekki út eins og júlí mánuður sé komin ef maður lítur út um gluggan hérna á Sigló þessa dagana,snjór niður í hlíð, rigning og rok það mætti frekar halda að það væri að koma haust. En við krossleggjum bara fingur og vonumst til þess að það verði komið gott veður um helgina því þá ætlum við í árgangi 78 að hittast sem verður án efa rosalega gaman því nokkra hefur maður ekki hitt síðan á árgangsmótinu 2004.Helgin var mjög fín skellti mér á Sauðárkrók á laugardaginn þar sem Landsbankamót var í fótbolta og gekk ks stelpum rosalega vel og kom 6 flokkur heim með gullið bæði a og b liðið glæsilegur árangur hjá þeim.Grillparty var hérna á túninu á laugardagskvöldið, við ákváðum að grilla saman liðið sem fór í road tripið um daginn. Ég sem var búin að versla fullt af kjöti fyrir veisluna en það endaði bara í frystinum hjá mér þar sem að strákarnir komu með fullt af kræsingum frá Hótelinu sem voru ekki af verri endanum og nóg að drekka með því Virkilega vel heppnað kvöld.....                             George stóð sig vel á grillinu Annars bíður maður bara spenntur eftir að hitta gömlu bekkjarfélagana aftur um helgina og ætli maður verði ekki að standa sig og koma með skýrslu eftir helgina </description>
I´m a busy lady....
      <description>úúffff það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér síðan ég settist hérna niður og bloggaði síðast. Um þar síðustu helgi á laugardagskvöldinu bauð ég Valdísi í smá kokteila party blandaði handa henni grænan frosk,cosmopitan og strawberry daquri sem heppnaðist svona glimrandi vel  Svo var kíkt aðeins á barinn.Á sunnudeginum var farið í fótbolta með strákunum og farið svo á allann og horft á Tékkland-Tyrkland sem endaði ekki alveg eins og við vildum en svona er fótboltinn.Fór svo niður á hótel að smakka alls konar svína rétti sem var svo skolað niður með einhverjum viðbjóðslegum 80% drykk. Á mánudeginum var ég í fríi og kúrði bara fram að hádegi voða næs. Hrökk svo í gírin eftir hádegi og fór að brasa í slideshowinu fyrir brúðkupið Rósu og Þorsteins og fóru næstu kvöld í það að redda myndum,skanna inn og gera þetta klárt.Á fimmtudaginn fór ég með Sylvíu til tannlæknis á akureyri og þarf litla skvísan að fá góm til að víkka út efri gómin ekki gaman það. En seinna um daginn kepptu þær í fótbolta við KA og unnu þær 1-3 bara glæsilegt hjá þeim.Á föstudagskvöldinu brunuðum við Eva upp í Skagafjörðin til að hjálpa til við brúðkaupsundirbúninginn. Fyrsta stopp var í Varmahlíð þar sem að við hittum allt liðið og þaðan var brunað í Ljósheima þar sem að veislan var haldin.Allt var nú að verða tilbúið þar þannig að það var nú ekki mikið fyrir okkur að gera nema bara svona smá dúllerý. Þegar allt var orðið klappað og klárt þá fórum við upp í bústað með Rósu og þar gistum við vinkonurnar saman síðasta kvöldið áður en Rósa varð FRÚ  Sævar kom aðeins í heimsókn til okkar því hann og Eva voru veislustjóar og þurftu þau aðeins að bera saman bækur sínar. Svo sátum við stöllur á spjalli og drukkum hvítvín fram eftir nóttu.Ræs var snemma á laugardeginum og brunuðum við Eva á krókinn fyrir kl 11 þar sem að okkar hlutverk var að sækja öll blómin fyrir veisluna og koma þeim í hús.Það var svona eitt og annað sem við áttum eftir að græja þannig að við þræddum búðirnar á Króknum og kláruðum að gera það sem eftir var.Svo var brunað aftur í bústaðin og gert sig klára fyrir athöfnina. Sandra,Hjalti og Hanna Sigga kíktu aðeins við í bústaðnum,Rósa kom og skellti sér í dressið hún var svo ótrúlega sæt þessi elska.Svo mætti Sævar á brúðarbílnum ásamt honum Steina pabba hennar þegar þau voru farin þá settum við í gírinn og skreyttum svefnherbergið með rósarblöðum,hjörtum og súkkulaði ótrúlega huggulegt hjá okkur.Síðan var stokkið inn í bíl og brunað að Hólum í Hjaltadal þar sem athöfnin var.Athöfnin var mjög fín þótt svo að við hefðum nú ekki séð mikið þeir sem hafa komið í þesa kirkju vita hvernig hún er.Svo var farið í Ljósheima þar sem veisluhöldin voru og stóðu Eva og Sævar sig mjög vel í veislustjórahlutverkinu.Hljósveitin Von eða 3 úr bandinu komu svo og léku fyrir dansi. Frábær dagur í alla staði. Takk kærlega fyrir mig.Vikan sem er að líða er búin að vera aðeins róglegri en síðasta en undirbúningur fyrir árgangsmótið okkar er búin að vera á fullu og erum við búin að vera að brasa svolítið fyrir það núna í vikunni og það á eftir að vera rosalega gaman hjá okkur. Þátttakan er mjög góð og það verður rosalega gaman að hitta þessa krakka aftur.Svo verður litla "stóra" skvísan mín 11 ára á morgun ótrúlegt hvað þetta líður hratt og allir eldast í kringum mann (finnst ég bara vera enn um tvítugt En sem sagt nóg búið að vera að gera og ég skal reyna að vera duglegri að bolgga reyni að skella inn myndum í dag úr brúðkaupinu..                                 Rósa skvísa komin í dressið                             Komin með brúðarvöndin                      Bríet sæta tók á móti okkur í Hóla kirkju                                                   Ný gift á leið út úr kirkjunni.                                          Ein af okkur vinkonunum í lokin.</description>
Road trip
      <description>loksins loksins nennti ég að gefa mér tíma til að henda inn nokkrum línum.Margt er búið að brasa síðan Eurovisionpartýið fína var,ekki nenni ég að þylja það allt upp en kem svona með það helsta Sjómannadagshelgina eða á laugardagskvöldinu skelltum við Anna okkur á smá skrall skelltum okkur á Allan og þar var dansband bæjarins að spila.......kom á óvart!Sunnudagurinn var tekin snemma upp úr kl 10 lögðum við Valdís af stað ásamt nokkrum góðum félugum í smá road trip til Akureyrar, eftir tvö pissu/bjór/smók stopp var komið rétt fyrir hádegi til Akureyrar og fyrsta stoppið var í jólahúsinu..alltaf gaman að koma þangað Síðan var farið í keilu teknir voru 2 leikir og kella lenti í 2 sæti rétt á eftir honum David....vinn bara næst.Næsta stopp átti að vera á Dalvík skella sér aðeins í sund en þar sem að við vorum á eftir áætlun þá slepptum við sundinu og fórum á Árskógsströnd að skoða Bruggsmiðjuna þar sem Tékkneskur bruggmeistari tók á móti okkur og leiddi okkur í gegnum þessa flottu verksmiðju og fengum að smakka þennan fína bjór. Eftir að hafa gegnið þarna um og þambað bjór í einn og hálfan tíma þá lá leiðin niður á bryggju þar sem að við ætluðum að taka ferjuna yfir í Hrísey. Þegar við mættum þá var bara engin bátur ekki sjáanlegur einu sinni, við ákváðum nú að hringja í ferjuna og ath hvenær hún kæmi, símsvarinn var á og hún var væntanleg eftir...........einn og hálfan tíma.Það var bara opnað skottið á kagganum og skálað fyrir góðri ferð.bruggmeistarinn kom aðeins og spjallaði við okkur en fór svo bara heim skellti sér í betri fötin sótti kærustuna sína og þau skelltu sér bara með okkur í Hrísey.Þegar komið var á eyjuna lá leið okkar á veitingastaðin Brekku þar sem við áttum pantað borð og fengum þennan fina mat. Eftir að hafa gúffað í sig sjávarréttum,lambakjöti,súkkulaði köku og skolað því niður með rauðvíni þá var rölt í rólegheitum niður á bryggju aftur og tekin síðasta ferð með ferjunni heim.Frábær ferð,fengum æðislega gott veður allir hressi og virkilega ánægðir með ferðina.Svo leið vikan og nóg var að gera, á fimmtudaginn sl skellti ég mér á Akureyri með fullan bíl af fótbolta stelpum 5 flokkur kvenna var að keppa við þór.Stelpurnar stóðu sig allar rosalega vel þótt svo að þær hefðu ekki náð að sigra. Þreytan var farin að segja til sín í lokin enda voru þær allar búinar að vera á fullu alla vikuna í fótboltaskóla Grétars. Kella splæsti í grill fyrir síðustu helgi, ákveðið var að við systur og Hjalti myndum nú bara borða eitthvað gott saman á laugardeginum og um kl 17 mætti Hjalli boy "the grillmaster" með grillsvuntuna sína og tendraði upp í grillinu og stóð sig ekkert smá vel með öl í annari og hvítvín í hinni eins og hann lísti sjálfum sér á sinni síðu En það var nú ekki bara fögnuður við kaupin á grillinu heldur byrjaði fótbolta veislan líka á laugardaginn Mínir menn frá Portugal hafa farið mjög vel af stað og eru búnir að tryggja sig áfram í sínum riðli Kella er bara ein í kotinu þessa dagana Sylvía skvísa skellti sér til útlanda á þriðjudaginn með Lindu,Ásdísi og hennar börnum og ætla þau að sleikja sólina í viku jæja ég held að þetta sé nú bara komið gott í bili er búin að setja inn myndir frá Road tripinu.</description>
Eurovision
      <description>Þriggja daga eurovision gleði var þetta árið þar sem að tvær undankeppnir voru haldnar og að sjálfsögðu aðalkvöldið á Laugardeginum, þá var sko slett úr klaufunumvið Kríurnar ákváðum að hittast og horfa saman á keppnina og þemað í ár var ´80 og leyfðum við nú systrum og vinkonum að skemmta sér með okkur.Partýið í ár var haldið á Hólaveginum hjá Evu Björk.Eftir að hafa horft á keppnina, snætt á kjúklingaréttum, horft á stigagjöfina og skultað í sig nokkrum hlaupskotum skeltum við geisladisk í græjurnar og tjúttuðum við eins og vitleysingar.Svo var ákveðið að skella sér aðeins á Allann með viðkomu á Túngötunni hjá henni Rósu, þar var mega party líka og tókum við nokkrar sveiflur þar áður en við fórum á dansiballið á Allanum. Ekki stoppuðum við lengi á allanum rétt kíktum inn og löbbuðum svo heim til Yankee og Marcel þar var standandi party fullt af liði og voðalega gaman.Skelltum við okkur svo aftur á ballið sem var bara mjög gaman þótt svo að bandið hafi ekki alveg verið að meika það. En við skemmtum okkur ofur vel enda var það planið. Enduðum við svo í eftir partý hjá strákunum.                                              Takk kærlega fyrir frábært kvöld </description>
Tár,bros og Manchester united eru meistarar.
      <description>þá er komið að uppgjöri ferðarinnar.Við Eva Björk og Hanna Sigga lögðum af stað aðeins seinna en áætlað var þar sem að það þurfti nú að yfir fara kaggann áður en ferðinni var heitið í Húsafell.En það var semsagt brunað á hundraðinu í Borganes þar sem að við þurftum að vera mættar í Geirabakarí fyrir kl 18 það leit nú út fyrir það á tímabili að það myndi ekki hafast en við vorum mættar á planið á slaginu kl 18 Gæsin mætti svo á svæðið skömmu eftir að við höfðum stormað í gegnuð Bónus og verslað fyrir helgina hitt og þetta af óskalista stelpnanna.Kíktum við svo aðeins í Hagkaup og náðum nú að eyða smá peningum þar Eva skellti sér í bílinn hjá Rósu  þar sem við Hanna þurftum að kíkka aðeins í aðrar búðir þar sem að það var ekki allt til í Bónus og síðan var brunað í bústað Sparisjóðsins, en þegar þangað var komið þá voru Sandra og Bryndís mættar á svæðið og voru að hengja upp nýjar gardínur í kofann, búnar að þrífa pottinn og hlamma sér í "hjónaherbergið" og komu með þá légegu afsökun að þær gætu bara ómögulega sofið í koju......yeah right  en við létum það eftir kjúklingunum.Við Hanna Sigga voru herbergisfélagar og komum við okkur þægilega vel fyrir í öðru herberginu.Þegar búið var að ganga frá öllu draslinu og allar búnar að koma sér vel fyrir var eldað og skálaðEftir matinn var sjálfsögðu skellt sér í pottinn með hvítvín og spjallað.Svo þegar inn var komið voru teknir nokkrir slagarar í singstar, skellt sér svo í kojuna því að það var ræs kl 06:45 á laugardagsmorguninn.Frekar erfitt var að koma sér á fætur þar sem að við náðum ekki nema um 5 tíma svefni.Brunað var í Bláa lónið og þar sem að Rósa hafði aldrei komið þangað þá var þetta bara enn meira spennandi fyrir hana. Þar beið okkar allra höfuð og herða nudd og þegar við vorum allar búnar að fá smá dekur fórum við og fengum kokteil og ávaxtabakka. Skelltum við okkur aðeins aftur í lónið og tókum nokkar myndir af okkur.Þegar allar voru búnar að sjæna sig fórum við á veitingastaðinn og fengum þar kjúklingasalat og súkkulaðimús í eftirrétt.Svo var brunað í bæinn og stoppuðum við aðeins hjá Ástþóri og Erlu og henntum inn til þeirra gamla barnavagninum mínum og knúsaði aðeins litla töffarann hann Óliver Leó.Næsta stopp var Kolaportið því það átti að reyna að vinna fatnað fyrir Eurovision partýið.Ekki gekk það vel og vorum við komnar út eftir nokkrar mín og var þá ferðinni heitið í stóru Hagkaup í holtagörðum þar sem að Sandra,Bryndís og Eva biðu okkar.Ekkert fundum við í matinn þarna og því var ákveðið að bruna í Nóatún og þar fundum við þennan líka dýrindis mat.Brunað var í bústaðinn og skellt steikunum á grillið,græjað kartöflurnar, salatið og sósuna. Þegar allar voru búnar að borða vel og skála fyrir gæsinni var gengið frá og tekið fram eftirréttinn... ís, ávexti,súkkulaði sósu og að sjálfsögðu typpaköku handa gæsinni sem að hann Kjartan Sigurjóns græjaði fyrir okkur.... ekkert smá góð kaka og það lá bara við slagsmálum að fá að bíta í drjólann.......nei ekki alveg  Þegar allar voru búnar að fá sinn bita af drjólanum var skellt sér í pottinn með vodka fleginn og nokkrar magic dósir, það var skálað og sungin eurovisionlög langt fram eftir nóttu.Eftir rúmlega þriggjatíma stund í pottinum var komin tími til að koma sér uppúr og kíkka á þær sem að voru löngu farnar uppúr, stemmninginn var náttúrulega bara "KILLER" í bústaðnum eða hitt og heldur ....allar gjörsamlega búnar á því nema Dagga hún var í bana stuði og ekki til í það að skella sér í kojuna..(tek þetta bara út um helgina )Sandý var svo almennileg að nagalakka mig áður en við fórum í háttinn og er ég mjög hissa á því að hún tók ekki mínu boði um að naglalakka hana Sofið var út á sunnudeginum, þrifið bústaðinn og keyrt heim.Frábær helgi í alla staði og hlakka ég til að tjútta almennilega með ykkur um helgina Ég get nú ekki slúttað þessu blogg á þess að minnast á mína menn í Manchester United sem voru í kvöld að spila í úrslitaleiknum á móti Chelsea.Eftir skemmtilegan leik og jafntefli eftir venjulegan leiktíma var framlengt og ekkert skorað. Vítaspyrnukeppni var málið eins og það er nú ósanngjarnt þá er lítið annað hægt að gera.Fyrst gekk þetta mjög vel stressið var orðið ansi mikið þegar minn maður Cristano Ronaldo klúðraði vítinu úfffff hvað ég fann til með honum.En þetta hafðist hjá mínum mönnum og það var mikil gleði hérna á Hafnartúniu.    Til hamingju með frábæran árangur í vetur!</description>
Kjötfars og kjötfarsbollur
      <description>hef ekki verið í neinu stuði til að henda færslu hérna inn síðustu daga, þannig að það er nú komin tími á smá update Síðasta þriðjudag uppúr kl 08 lögðum við Bryndís og Anna Hermína af stað til Akureyrar og þar sem að það hafði verið skítaverður helgina áður ákváðum við að fara á bílnum Jósýar og Steina svo að við kæmumst alveg örugglega yfir lágheiðina.Ferðin gekk ljómandi vel og skemmtum við okkur en betur og sungum hástöfum leiðina frá Dalvík.Þegar komið var til Akureyrar var byrjað á því að kíkka aðeins í búðir og svona það sem fylgir því að fara á Akureyri. Svo var bara dúllað sér þarna yfir daginn og enduðum á því að fara og fá okkur að borða á Greifanum og ég þakka bara guði fyrir það að það var fámennt á staðnum þegar að við vorum þar.Bryndís fór á kostum var með sögustund og ég ætla ekkert að segja neitt meira um það Helgin var bara mjög góð.... var að vinna á Bíóinu á föstudagskvöldinu og gat því hlutstað á tónleikana Snilldin ein jemmin hvað þeir voru góðir fá alveg 10 fyrir kvöldið.Eftir tónleikana var opnaður barinn uppi og var ég þar til lokun.Á laugardagsmorguninn var ég mætt upp í kirkju um kl 10 og klæddi fermingarbörnin í kirtlana.Var boðið í eina fermingarveislu og fór svo með Söndru til Begga og Paul þeir voru með opið hús,glæsilegar myndirnar hjá þeim, ef ég ætti mjög svert veski þá myndi ég sennilega versla mér eins og eina jafnvel tvær myndir þarna hjá þeim.......en ég verð bara að láta mig dreyma.Um kvöldið bauð Valdís mér í mat og svo skellti ég mér á Pub quiz með Önnu og svo mættu Eva og Hanna Sigga, Rósa,Þorsteinn og Bryndís,ekki unnum við í þetta sinn en við fengum árs áskrift að Hellunni.Eftir aðeins of langa keppni var ball með Stúlla og Dúa, það var tjúttað fram eftir morgni og vorum við vinkonur ég og Rósa að skrölta heim rétt fyrir morgunmat eftir smá kríu var brunað að sækja Söndru og við upp í kirju að klæða fermingarbörnin, ekki nenntum við að sitja upp á kirkju lofti á meðan athöfnin var þannig að ég bauð Söndru bara heim í gulrótarköku á meðan við vorum að bíða.Svo var Anna Hermína að ferma litla drenginn sinn og fórum við í veisluna til hans.Sunnudagskvöldið fór bara í rólegheit tók rúnt með Rósu sem var enn að jafna sig eftir tjúttið...er varla búin að því ennþá Mánudagurinn fór í það að sofa út og þrífa kofann.Svo er bara skemmtileg helgi fram undan ...sumarbústaðar ferð með skvíunum Rósa skvísa er að fara að gifta sig í sumar og ætlum við að fara allar saman í bústað og skemmta okkur vel um helgina.</description>
Sól sól skín á mig.......
      <description>bíð spennt eftir því að gula vinkona mín fari að láta sjá sig hérna í friðinum.Get ekki neitað því að ég sé orðin þreytt á snjónum enda er þetta að verða komið gott.Ætla ekki að blaðra meira um þetta blessaða veður.Það er alltaf nóg að gera á stórheimilinu. Það var firmamót í badminton síðasta þriðjudag og lenti ég með henni Steinunni Þóru, við stöllur stóðum okkur svona þokkalega tók sinn tíma að "bonda" að vísu vorum við ekki á meðal þeirra efstu í þetta sinn gengur bara betur næst .... En frændsyskinin Arnar og Sigga Dana unnu í ár...... Til hamingju með það Svo er nóg að gera í vinnu, allstaðar er maður... að  þrífa bankan fyrir Lindu hún skellti sér með bankaliðinu til Köben í síðustu viku og svo núna á blakmótið og svo leysir maður litla gerpið af í Norðurljósum svo hún geti spókað sig um í Köben eða borginni.Kl 8 í fyrramálið  er ferðinni svo heitið á Akureyri með litlu ormana í 7 flokki á Greifamót. Það verður án efa mjög gaman.Annars verður bara róleg heit á kellu um helgina þar sem að Pub quiz verður ekki fyrr en 10 maí.Svo er það bara Akureyri aftur á þriðjudaginn með skodaskvíunni henni Bryndísi Good times in Dublin  </description>
Gleðilegt sumar...
      <description>Sumarið loksins komið  samkvæmt dagatalinu en það var ekkert sérlega sumarlegt út í morgun en það hefur reyndar verið sumarblíða hérna í firðinum síðustu daga ekki hægt að kvarta yfir því.En það er alltaf nóg að gera hjá kellu,síðustu helgi skelli ég mér á Ólafsfjörð og keppti á Norðurlandsmóti í badminton (skrifaði þetta rétt núna.... björnsson )Lagði af stað um kl 09 á laugardagsmorgun ásamt meðspilara mínum henni Önnu Hermínu.Rúmlega 10 hófst svo mótið og krakkarnir byrjuðu að spila og var spilað á 7 völlum, um hádegi byrjuðum við fullorðna fólkið svo að spila.Við Anna ætluðum nú bara að spila í tvíliða en svo ákváðum við nú að skrá okkur líka í einliða. Okkur gekk nú bara mjög vel unnum 2 leiki og töpuðum 2 er nú bara nokkuð sátt við það Mótið stóð yfir allan daginn og var verðlauna afhending um kl 19. Virkilega skemmtilegt mót og nú er bara að æfa sig á fullu fyrir mótið á næsta ári.Við Anna ákváðum svo að bjóða bara krakkaormunum okkar út á borða á Ólafsfirði og skelltum við okkur á Höllina sem er bara virkilega fínn staður og mjög góður matur.Það var svo brunað heim og vorum við komin heim 10 mín í 10 og það var drifið sig heim í önnur föt,slétt á sér hárið og sjænað sig aðeins og niður á Allann á Pub quiz.Frekar fámennt var í þetta sinn ekki nema 5 lið og stóðu 3 uppi sem sigurvegar og að sjálfsögðu voru við Anna eitt að þessum liðum Eftir Pub quizið var dansiball með dansbandi bæjarins Stúlla og Dúa.Á sunnudaginn skelltum við Valdís okkur með stelpurnar okkar inn á Akureyri, kíktum aðeins í búðir og skelltum okkur svo á skauta sem var bara gaman.</description>
Helvítis drasl....!
      <description>Er að bilast á þessu kerfi mér tekst bara ekki að setja inn myndir Ekki sátt við þessar breytingar.....Einhver sem getur gefið mér einhverjar leiðbeiningar um þetta nýja kerfi,,?</description>
Strumpa próf !
      <description>    Er bara nokkuð sátt við þessa útkomu Endilega takið prófið og sjáið hvað strumpar þið eruð.Þið getið tekið prófið hér http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm</description>
Friky friday!
      <description>Enn einn föstudagurinn komin, vikurnar fljúga áfram og áður en ég veit af verður komið sumar sem betur fer .... er svona um það bil að fá miklu meira en nóg af þessum blessaða snjó.Nóg hefur verið að gera síðustu daga.vinna,þjálfa,fara í ræktina,spila fótbolta og skipuleggja árgangsmót. Og ekki lítur út fyrir að það fari að hægjast um hjá mér fyrr en í lok maí....allar helgar planaðar sem er bara fínt þá verður tíminn fljótari að líða Helgin verður í rólegri kantinum Sylvía er að fara til Reykjavíkur í dag að keppa í badmington.Ætla að hafa bara kósý kvöld í kvöld, dúllast bara eitthvað á morgun, glápa á dvd og hafa það gott bara... nema að það verði bara þokkalegt veður þá skellir maður sé í göngutúr eða eitthvað Annað kvöld fara svo strákarnir heim í frí maður verður nú að fara og kasta kveðju á þá áður en þeir fara.Svo ætlum við Bryndís að fá okkur einn rúnt það er orðið ansi langt síðan við höfum hittst og spjallað og það verður sko nóg að tala um held ég.... ef ég þekki hana rétt þá hefur hún nóg að segja mér  ekki satt Bryndís.Ætli sunnudagurinn endi ekki bara í leti... verð að vera úthvíld fyrir komandi átök.Og Sigga mín ég er ekki ennþá búin að setja inn myndirnar..ætlaði að gera það þarna um kvöldið en þá var eitthvað vesen á netinu, geri það um helgina </description>
Friday and I´m in love
      <description>þá eru páskarnir búnir þetta árið ekkert smá gott að fá smá frí.En þessir páskar voru frekar skrýtnir í ár þar sem að Sigga er búin að vera í Hollandi sl mánuð og mamma og Aníta skelltu sér í heimsókn til hennar, þannig að það voru bara ég,Sandra og Pabbi...og Sylvía en hún var hjá föðurfólkinu sínu alla páskana.Skírdagur var frekar rólegur var að vinna í Norðurljósum fyrri part dags, fór svo heim og græjaði matinn fyrir kvöldið þar sem að ég hélt smá matarboð þar mættu Sandra, Ástþór, Erla, Díana og litli sæti kúturinn hann Óliver Leó.Og eins og alltaf þegar við borðum saman þá var tekinn einn Buzz leikur eftir matinn svona til að gleðja Sylvíu Eftir að hafa spilað í rúmar 2 klukkustundir þá stóð Sylvía uppi sem sigurvegari..Föstudagurinn langi var bara nokkuð góður við systur skelltum okkur í ræktina og í ljós á eftir, svo var farið heim í sparigallan og strunsað niður á Bíó café í afmælið hjá Óla Birgis og ég held bara að þetta sé það skemmtilegasta afmæli sem ég hef farið í..Á laugardaginn hélt pabbi matarboð því fóstursyskinin voru mætt á svæðið með fjölskyldur sínar, það var voða gaman að hitta þau en það er orðið ansi langt síðan við höfum hittst öll ja svona næstum því en það vantaði náttúrulega Siggu og Anítu..Svo ákváðum við í saumaklúbbnum að skella okkur á Góugleði Ks Leifturs og það var hittingur heima hjá Söndru í fordrykk, svo var skellt sér niður á Bíó Café á skemtuninna sem var bara virkilega skemmtileg og veislustjórinn alveg frábær.Ballið var hinsvegar ekki alveg jafn skemmtilegt og fljótlega upp úr kl 1 þá ákváðum við Rósa og Eva að rölta bara aðeins yfir á allann en þar var bara fínasta stemmning og við fórum ekkert til baka aftur.Enduðum svo í partý á hótelinu.Sunnudagurinn var frekar rólegur bara stelpurnar komu í kaffi til mín og það var farið að plana gæsun fyrir Rósu Marý. Fanney var svo elskuleg að bjóða okkur í mat á páskadagskvöld eftir matinn var kíkt aðeins á Ásþór og co á Hverfisgötunni. Sunnudagskvöldið var frekar rólegt endaði bara upp í sófa með popp og horfði á Music and lyrics.Mánudagurinn var ennþá rólegri legið í leti fram eftir degi og nartað í páskaeggið.En það er komin helgi enn og aftur Ekki er búið að plana mikið þessa helgina nema bara skella sér í ræktina á morgun með Önnu, þrífa kofann og fara á Pub quiz annað kvöld og reyna að vinna annan bjórkassa </description>
London and back home.....
      <description>Þá er maður búin að skella sér í heimsókn til Gunnhildar í London.Frábær ferð hefði nú samt þurft aðeins meiri tíma til að gera allt sem mig langaði til að gera en ég verð bara að fara aftur.Er búin að henda inn myndum..nenni ekki að skrifa ferðasögu þannig að ég hendi bara niður nokkrum punktum úr ferðinni.Fimmtudagur:Flogið út, fórum í lest í fyrsta skiptið.hittum Gunnhildi á lestarstöðinni fengum okkur einn kaldan.farið heim með töskurnar og skellt sér á lífið.Föstudagur: Vaknað snemma,farið á Oxford street búðirnar þræddar en við komumst ekki nema hálfa götuna farið heim og græjað sig fyrir kvöldið, kíkt á djammið það voru þræddir ýmsir pöbbar.....venjulegur pöb.....farið á diskó þar var goth og vampíruþema....og endað á gaybar.Laugardagur: Skelltum okkur í túristagallan og fórum á Madame Tussauds safnið. sáum Big Ben og London eye, nenntum ekki að bíða í biðröð í klukkutíma í rigningu og smá roki til að komast í London eye.Svo var farið heim og gert sig huggulegan því við fórum út að borða á Ítölskum veitingastað með John og Rosie vinum Gunnhildar. Svo var kíkt á pöbbinn í hverfinu bara..fín hljómveit að spila.Sunnudagur: Sofið út.tekið smá rölt í búðirnar og verslað pínu.farið heim og troðið í töskurnar. Tekið strætó á lestarstöðina allt brjálað í strætó. Strætóbílstjórinn og farþegi að rífast lá við slagsmálum vorum að hugsa um að stökkva bara út en þetta reddaðist áður en löggan kom. Rétt komumst í lestina. Flugið heim gekk vel.Geggjuð ferð og ég þakka Gunnhildi bara kærlega fyrir okkur.Svo þegar heim var komið þá var skellt sér í próf í bókfærslu og gekk það vonum framar:)Á miðvikudaginn var svo útskrift hjá okkur sem vorum í Skrifstofunáminu. Voðalega sátt við einkunirnar mínar 9,1 í verslunarreikningi og 5 í bókfærslu....bara sátt við að ná Á laugardaginn borðuðum við svo saman ég,Valdís og Anna Hermína í tilefni að því að vera búnar með skólan og svo átti Valdís afmæli 12 mars. Skelltum okkur svo á tjúttið.Geggjað kvöld og það verður sko seint toppað held ég.Takk fyrir kvöldið stelpur </description>
Pub quiz gellurnar
      <description>já við Eva unnum pub quiz í gær og unnum kassa af bjór Eftir keppnina skelltum við okkur á tjúttið vorum að fagna góðum einkunum úr verslunarreikningnum.Svo er það bara London á fimmtudaginn við Rósa Marý ætlum að skella okkur yfir helgina og heimsækja Gunnhildi okkarþað verður án efa mega stuð hlakka mikið til.</description>
jæja gott fólk......
      <description>er ekki komin tími á smá færslu eða hvað...........hef ekkert getað bloggað eða sett inn myndir þar sem að netið er búið að vera í einhverju messi hjá mér síðustu vikur.....verð að fara að hringja í einhvern sem hefur vit á þessu.En það hefur nú eitt og annað gerst síðan 28 janúar. Fyrsti saumaklúbburinn var haldin 29 janúar heima hjá mér, þvílíka stuðið sem var á okkur....klúbburinn fékk nafn "kríurnar" svo erum við með annað sem er leyni nafn Það var auðvitað skellt sér á tjúttið  Síðustu helgi fóru skvísurnar í 5 flokki suður að keppa í úrslitunum og þær kom heim sem Íslandsmeistarar  glæsilegt hjá þeim.En á laugardagskvöldinu var þorrablót KKS í íþróttahúsinu þar sem að um 300 manns mættu og höfðu gaman við á bæjarskrifstofunni hérna og á Ólafsfirði skelltum okkur og skemmtum okkur mjög vel.Frábærlega vel heppnað allt saman þótt svo að bandið hefði mátt vera örlítið líflegra..... en Anita kom með fínt stöff með sér þannig að við systur náðum að koma okkur í gírinn                 Voðalega fínn íþróttasalurinn hjá þeim í karlakórnum.                         We are superstar                                               og ein af okkur í stuði Bryndís mín ég stal myndunum frá þér set mínar inn eftir helgi Svo er ferðinni heitið á Akureyri um helgina þar sem að skottið er að fara að keppa á Goðamótinu.</description>
BRYNDÍS MÍN ÉG ER BÚIN AÐ SETJA INN MYNDIR 
      <description>skoðaskvísan kvartaði yfir því að ég léti ekki vita af því þegar að ég setti inn myndir, en það eru semsagt komnar inn myndir frá fótboltamótinu hjá Sylvíu og pizzupartyinu hjá Önnu um kvöldið og eins þegar við kíktum á barinn Jæja enn ein helgin að baki og janúar er bara að verða búin..... ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.Um helgina tók 5 flokkur kvenna þátt í innanhúsmóti í fótbolta sem haldið var hérna á Siglufirði og stóðu þær sig rosalega vel unnu alla leikina 3 og eru komnar áfram glæsilegt hjá þeim en um kvöldið mættu þær allar í pizzu og video hjá nýja þjálfaranum sínum henni Önnu Hermínu.En á laugardaginn nk verður fyrsti hittingur hjá okkur skvísunum í nýja saumaklúbbnum og mikið hlakka ég til held að það eigi eftir að vera voðlega gaman hjá okkur.Svo að lokum ætla ég að kasta afmæliskveðju til hennar Gunnhildar minnar sem á afmæli í dag                                                              Tilbúin í veiði á SR bryggjunni </description>
Harmi sleginn...
      <description>Mér er mjög brugðið eftir að heyra þessa frétt um aldlát Heath Ledger,mikið er þetta sorglegt. Ungur og efnilegur leikari fallinn í valinn aðeins 28 ára gamall..  Hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér eftir að ég sá myndina 10 things I hate about you.. Síðan hef ég séð Heath Ledger í nokkrum myndum og alltaf fannst mér hann góður og skemmtilegur leikari, þetta er mikill missir fyrir leikarastéttina..</description>
Handbolti,Bobby Fisher og borgarstjórnin....
      <description>þetta er það eina sem glymur í útvarpinu þessa dagana. Ekki hef mikið um þetta að segja nema þá bara handboltan sem hefur gengið svona upp og niður aðallega niður hjá okkar mönnum.....hélt að þetta væri að koma hjá þeim í dag þegar "góði" kaflinn kom en hann stoppaði stutt í þetta skiptið og þjóðverjarnir sigruðu Vona bara að þeir nái sér á strik í þessum 2 leikjum sem eftir eru.En annars er voðalega lítið að frétta....kíkti á tjúttið með Söndru og Erlu á laugardaginn enduðum á svakalegu tjútti...Takk fyrir mjög skemmtilegt kvöld stelpur.....verðum að endurtaka þetta aftur Það styttist svo óðum í fyrsta saumaklúbbinn hjá okkur en fyrsti hittingurinn verður 2 febrúar á Hafnartúninu og er búist við MEGA stuði enda ekkert smá hópur sem er að fara að hittast hey skvísur verðum við ekki að finna eitthvað nafn?</description>
Sandy girl
      <description>....er 25 ára í dag.              Til hamingju með daginn Sandra mín.er búin að henda inn myndum... </description>
Jóla jóla.......
      <description>er ekki komin tími á smá færslu eða hvað ?Það er margt búið að bralla síðan ég bloggaði síðast..... Við mæðgur og Sandra brunuðum í borgina eitt þriðjudagskvöldið og kláruðum það sem við áttum eftir að versla fyrir jólin, allar helstu búðir í borginni þræddar á daginn og svo fóru kvöldin til að hitta föður fólkið okkar. Svo urðum við nú að kíkka aðeins á litla uppáhaldsfrænda okkar hann Óliver Leó.Þann 8 des skelltum við okkur ég,Sandra,Eva,Sigga og Hilmar á jólahlaðborð i Allanum.  Laugadaginn 15 desember skelltum við mæðgur og Sandra okkur á Akureyri og þar sem að sumir náðu ekki að klára allt í borginni þá var aðeins farið í búðir   En það var ekki bara farið í búðir við skelltum okkur líka í bíó og við fórum að sjá Alvin og íkornana rosalega skemmtileg mynd  eftir bíóið var ferðinni heitið i jólahúsið þar sem að við fengum okkur hangikjöt og ristaðar möndlur..                                                          Svo komu jólin...þetta árið var engin heimsókn frá jólasveininum þar sem að skottið er hætt að trúa á jólasveininn þá var bara ákveðið að hún fengi einn lítin auka pakka í staðin   aðfangadagur var frekar rólegur það var farið fljótlega upp úr hádegi að dreifa pökkum og jólakortum, kíkt í kaffi til Önnu Láru, farið heim í jólabaðið klætt sig í jóladressið og drifið sig í messu.Að messu lokinni var farið niður að styttu og kveikt á kerti.                                   á aðfangadag                                                                                                Pakkaflóð                   Á jóladagskvöld kom spilagengið í kaffi og kökur og þegar allir voru búnir að næra sig var rýmt til og spilið tekið fram skipt í lið og byrjað að spila.                                              Hjalti og Rósa                                            Daði og Sandra                                     Þorsteinn og Gunna                                           Ég og Elli Eftir að hafa spilað í rúmlega 4 klukkutíma þá stóðu Þorsteinn og Gunna eftir sem sigurvegarar í Partý og co þetta árið.en ég held því fram að við Elli höfum verið sigurvegarar kvöldsins þar sem að óheppnin elti okkur hvað eftir annað og lengi vel vorum við síðust með enga plötu, en við létum það ekki á okkur fá og spíttum í lófana og náðum hinum og gott betur við  vorum allavega með fleiri plötur í lokin en svindl team nr 1 Svo sjáumst við bara á tjúttinu um helgina  </description>
Norðurljós
      <description>Loksins loksins er búið að opna Sólbaðstofuna Norðurljós.Opnað var þann 23 nóvember.Allir að skella sér í ljós næla sér í smá "tan" fyrir jólin.     Í tilefni af opnun Norðurljósa á Norðurgötu 4  verður magnað opnunartilboð á ljósakortum.  10 tíma kort 5000 kr  5 tíma kort 3000 kr  Stakur tími 800 kr  Gildistími á kortum er einn mánuður.  Tilboðin gilda frá og með deginum í dag til og með 5. desember.  Erum einnig með mikið úrval af kremum frá California tan og Emerald bay.  Opnunartími.  Mánudaga - Miðvikudaga........ 17 - 21  Fimmtudaga................................. 17 - 22  Föstudaga...................................... 17 - 21  Laugardaga................................... 11 - 15     Tímapantanir í síma 467-2030.  Verið velkomin.</description>
Brjálað að gera...
      <description>nóg hefur verið að gera hjá mér síðustu daga að hjálpa Söndru og Hjalta að koma sólbaðstofunni í stand og loksins er farið að sjá fyrir endan á þessu öllu saman og það styttist í opnun En ég hef ekki haft tíma til að henda inn ferðasögu og ég mæli bara með því að þið skoðið myndirnar frá ferðinni.</description>
Dublin.....here we come 
      <description>Ákvað að henda inn nokkrum línum svona áður en ég fer í verslunarferðina Þann 16 okt sl kom loksins litli frændi minn í heiminn hann lét sko bíða eftir sér í 2 vikur og er litli kúturinn búin að fá nafnið Óliver Leó, ég gæti ekki verið glaðari með nafnið þar sem að Óliver er eitt af mínum uppáhalds nöfnum Hlakka mikið til að fara á morgun og knúsa hann..En á laugardaginn hélt Hanna Sigga skvísa upp á 25 ára afmælið sitt og það var sko veisla í lagi, stelpan getur þetta .. Takk fyrir mig Hanna mín.En eftir afmælið lá leiðinn í bæinn, við ákváðum nú að kíkka aðeins við í Lions húsinu en þar var Halli að halda upp á afmælið sitt og ekki var síðri veislan þar, eftir að hafa skutlaði í sig nokkrum glösum og brosað framan í myndavélina (einhver Tékki tók myndavélina mína og var óstöðvandi) þá var kíkkt aðeins á allann ekki var nú margt um mannin þar (minnir ekki) en það var allavega mega stuð á okkur og eftir lokun lá straumurinn í Lions aftur og það var tjúttað fram á morgun  Frábært kvöld og það er nú langt síðan ég hef skemmt mér svona vel á Sigló....kannski að ég fari og hendi einhverju drasli ofan í tösku....</description>
Dublinar skvísukvöld
      <description>Þar sem að það styttist óðum í hina árlegu Dublinar ferð þá ákváðum við skvísurnar sex að hittast og taka nett djamm bara svona að hita okkur upp fyrir tjúttið í dublin. Kvöldið heppnaðist bara mjög vel og ég held að ef að við Lilla ættum ekki svona frábæran félaga þá hefði þetta kvöld ekki verið svona skemmtilegt, hann kom okkur sko til að hlægja með allskonar vitleysu  og stelpur mínar munið bara 10 nóv á akureyri gisting í boði xxxx og út að borða ef hann vinnur fleiri myndir frá kvöldinu í myndaalbúminu....</description>
Hvernig er þetta hjá þér ?
      <description>Mitt er: Ég skaut playboykanínu af því að mamma sagði mér að gera það Veldu mánuðinn sem þú fæddist- Janúar- Ég drap Febrúar- Ég sló Mars- Ég svaf hjá Apríl- Ég horfði á Maí- Ég kyssti Júní- Ég slefaði á Julí- Ég hló að Ágúst- Ég stakk September- Ég skaut Október- Ég naut ásta með Nóvember- Ég handtók Desember- Ég kúkaði á Veldu núna afmælisdaginn þinn- 1. Hóru 2. Kærasta/una þína 3. Konu með HIV 4. Kynæsandi Dverg 5. Jólasvein 6. Playboykanínu 7. Giftri móðir 8. Kennara 9. Mömmu þína 10. Páskahérann 11. Köttinn 12. Djöflinum 13. Asíksum skiptinema 14. Jónsa í svörtum fötum 15. Stein 16. DVD spilara 17. Klámstjörnu 18. Síma 19. Tölvu 20. Húsið þitt 21. Svín 22. Lampa 23. Kúk 24. Davíð Oddson 25. 50 cent 26. Kynskipting 27. Yddara 28. Skólaumsókn 29. Birgittu Haukdal 30. Tappatogara 31. Prentara Veldu Þriðja stafinn í eftirnafninu þínu - A- Af því að ég elska súkkulaði B- Af því að mér leiddist C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar D- Af því að ég þarf alltaf að prumpa E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin G- Af því mér finnst egg góð H- Af því að ég er á sýru I- Af því ég misteig mig J- Af því ég er með vörtu K- Af því mér líkar Cheer L- Af því að ég var skökk/skakkur M- Af því ég var full/ur N- Af því að mamma sagði mér að gera það O- Af því ég er hýr P- Af því ég er einmanna Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast R- Af því að ég er gröð/graður S- Af því mig langar að deyja T- Af því ég hata skóla U- Af því ég þarf að fróa mér V- Af því að ég elska náttfata party W- Af því að það róar mig X- Af því að ég elska marmelaði Y- Af því að ég elska prump Ö- Því ég er að safna rassahárum </description>
Stjörnumerkin eftir að kynlífi lýkur !!!
      <description>Hrútur: "Ok , gerum það aftur!"Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu"Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?"Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??"Ljón: "Var ég ekki frábær??"Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin"Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?"Bogamaður: Ekki hringja í mig -ég hringi í þig.                                                                                                                                                                                                       Steingeit: "Áttu nafnspjald?"Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?" </description>
Bryndís biður um blogg....
      <description>það er best að henda inn nokkrum línum fyrir skodaskvísuna Það er svo sem ekki mikið að frétta af mér þessa dagana það er bara same old s..... og lærdómur sem er bara að ganga frá mér, hélt að þetta yrði nú ekki svona erfitt en það er þó aðalega helv.... stærðfræðin... hlakka til að sjá hvort að þessi sviga og velda útreikningur eigi eftir að hjálpa mér mikið þegar að ég verð að nudda einhvern í framtíðinni.....uh efast einhvern veginn um það, en það þýðir ekkert að væla yfir þessu, þetta er bara svona og ég verð að gjöra svo vel að læra þetta bara fyrst að ég ætla að fara í nuddnámið.En nóg um það ég ætla að skella mér í borgina á morgun og vonandi verð ég svo heppin að litla frændsystkynið mitt  komi í heiminn á meðan ég verð þar en Erla hans Ástþórs var skráð í fyrradag og ég bíð bara spennt enda er frekar langt síðan lítið kríli kom í fjölskylduna.Svo styttist í hina árlegu Dublinar ferð ekki nema 3 vikur í dag..  víííi hlakka mikið til enda er ekkert smá hópur sem fer í ár 12 stk og það verður bara gaman hjá okkur Jæja læt þetta duga í bili, þangað til næst   verið nú dugleg að kvitta </description>
Busy lady
      <description>Jæja gott fólk þá er best að henda inn nokkrum línum þar sem að ég hef fengið kvörtun um bloggleysið á þessum bæ.En það er búið að vera mikið að gera á stór heimilinu síðan ég skrifaði síðast Það var skellt sér í borgina þar síðustu helgi í afmæli hjá Báru frænku á föstudagskvöldinu, svo dúlluðumst við systur bara í kringunni og smáralindinni á laugardeginum, svo átti nú að kíkka á djammið á laugardeginum en ég var bara ekki að nenna því þar sem að Rósa og Hanna Sigga fóru norður þannig að það var bara rólegt á laugardagskvöldinu.Svo tók við fyrsta vinnuvikan eftir 4 vikur í fríi og ég verð bara að segja það að þessi vika var frekar erfið þá sérstaklega að koma sér á fætur En um síðustu helgi var okkur starfsmönnum skrifstofa og forstöðumönnum Fjallabyggðar í ævintýraferð í Skagafjörðinn Ólafsfirðingarnir komu og sóttu okkur á laugardagsmorguninn og það var farið á skotsvæðið á Sauðárkróki og þar var okkur skipt i 3 hópa og fengum við að skjóta úr boga,haglabyssu og rifli, ekkert smá gaman og ég er ekki frá því að ég eigi eftir að suða í pabba um að fá að fara með honum einhverntíman að skjóta   Svo fórum við á Kaffi Krók í hádegismat því ekki máttum við fara svöng í rafting, alveg var ég á báðum áttum hvort að ég ætti að fara í þessa ferð því að það var frekar leiðinlegt veður ógeðslega kalt og vindur.En ég lét mig nú hafa þetta og sé ekki eftir því, við fengum frábæran leiðsögumann sem tókst að stranda á grjóti og gera gat á bátinn okkar  Eftir siglinguna var farið í heitapottinn í Varmahlíð og reynt að fá smá yl í kroppinn og þaðan í mat á Hótel Varmahlíð þar var tekið vel á móti okkur með fordrykk og næs, eftir frábæran mat, söng og mikinn hlátur var haldið heim á leið við reyndar þurftum að skila Ólafsfirðingunum af okkur fyrst. Þegar heim var komið skellti maður sér í balldressið og fór á ball í Allanum sem var bara ótrúlega fínt.Jæja þetta er orðið gott í bili ætla að reyna að fara að kíkka í skólabækurnar þar sem að ég þarf að skila fyrsta verkefninu í stærðfræði á fimmtudag.</description>
Home sweet home
      <description>Þá er maður komin heim á klakan eftir frábæra dvöl í Portugal.Þvílík afslöppun það var vaknað snemma borðað morgunmat og farið í sólbað legið fram að hádegi fengið sér hádegismat farið aftur í sólbað og legið til svona 5 þá var farið inn og haft sig til fyrir kvöldið labbað niður í bæ og fengið sér kvöldmat... getur varla verið betra.Frábær ferð í alla staði svona fyrir utan heimferðina þar sem að fluginu seinkaði um 4 tíma áttum að lenda kl 03:10 en komum ekki heim fyrr en að ganga 07:30  án efa eitt leiðinlegasta flug sem ég hef farið í, en svona er þetta bara.hendi inn myndum fljótlega  </description>
Sól og sæla 
      <description>Ætla að skella mér á morgun í viku í sólina á Portugal   </description>
Að vera vinur....
      <description>     Að vera vinur er að treysta, Að vera vinur er að hjálpa, Að vera vinur er að gleðja. Að eiga vin er manni allt, Að eiga vin að vera aldrei einn, Að eiga vin er lifsins fjársjóður. Vinir gera allt saman, þeir deila öllu saman, hlæja saman og gráta saman, vinir elska hvorn annan.                                                             knús og kossar kæru vinir.                                                                           </description>
Sigurvegarar
      <description>Jæja þá er maður komin heim í fjörðin við mæðgur byrjuðum á því að skella okkur í borgina ætluðum nú aldeilis að dúlla okkur þar í viku eða svo fórum suður á mánudagsmorgun og eftir hádegi fékk ég símtal... Sylvía átti að fara á Fáskrúðsfjörð að keppa í úrslitum á íslandsmótinu í fótbolta um helgina... við sem ætluðum að skella okkur á tónleika á laugardagsvellinum og skemmta okkur á menningarnótt en það kemur önnur menningarnótt.Þannig að við brunuðum heim á föstudaginn og á laugardagsmorgun var haldið af stað austur. Farið var á KS bílnum og bæjarbílnum, við byrjuðum á því að stoppa aðeins í bónus á akureyri og þar var verslað morgunmat og ávexti síðan var haldið áfram og næsta stopp var Goðafoss þar stukkum við aðeins út að skoða stelpunum fannst þetta voðalega spennandi, jæja næst var skellt sér í jarðböðin við Mývatn og það var bara virkilega fínt hef aldrei komið þangað áður þannig að þetta kom mér virkilega á óvart hvað þetta er fínt þarna hjá þeim hins vegar fannst stelpunum "ógeðsleg eggjalykt "þarna og héldu þær allar fyrir nefið á leiðinni ofan í en þær voru ekki lengi að gleyma sér og voru allar farnar að kafa og leika sér þegar þær voru komnar ofan í. Eftir að hafa náð að halda þeim þarna næstum því klukkutíma "þær voru allar búnar að fá nóg eftir korter... þá var smalað öllum upp í bílana og keyrt aðeins upp á hæðina og þar var sest niður og borðað nesti, einhverjar mömmur voru svo myndarlegar að baka fullt handa okkur   þegar að allir voru búinir að fá sér vel að borða var keyrt á Egilstaði þar var stoppað Síminn var með einhverja skemmtun, þarna var hoppukastali og allir fengu ís voðalega gaman því næst var bara brunað á Fáskrúðsfjörð. Ef að einhver hefur verið að kvarta yfir Siglufirði þá ætti hann að gera sér ferð austur það er ekki hægt að segja að þessi bær sé spennandi.En nóg um það við komum okkur vel fyrir í skólanum fórum og fengum okkur að borða á Café Sumarlínu sem er reyndar ótrúlegla kósý staður. Svo var farið upp í skóla og allir út í fótbolta og voru það eldri á móti yngri Á sunnudaginn var vaknað snemma og fengið sér vel að borða, pakkað niður og rölt niður á völl.Fyrsti leikur var við hött og endaði hann 8-1 fyrir KS.næsti leikur var heldur erfiðari hann var á móti þór en stelpurnar gáfust ekki upp og náðu að jafna rétt áður en að leikurinn var flautaður af 1-1 endaði hann.Og þá var spilað við Firði og urðum við að vinna hann með nokkrum mörkum til að vera með betri markatölu en Þór og sá leikur endaði 12-1 fyrir KS Og stóðu þær uppi sem sigurvegarar með jafnmörg stig og Þór en með betri markatölu.Glæsilegur árangur hjá þeim.Eftir verðlaunaafhendinu, sigurdans og sturtu var haldið upp á Egilstaði í pizzuveislu í boði Sparisjóðsins.Því næst var haldið heim á leið eftir frábæra ferð austur Hérna er mynd af hópnum með bikarinn og ein af skvísunni minni með bikarinn Er búin að setja inn myndir frá ferðinni austur í albúmið Sylvíu. </description>
Loksins komin í sumarfrí
      <description>Jæja þá er maður loksins komin í sumarfrí og ekki byrjar það vel því að ég er búin að liggja veik með hálsbólgu og kvef og það toppaði allt í morgun þegar ég fór upp á sjúkrahús til læknis...komin með sýkingu í eyrun En ég harka þetta af mér.... svo er það bara sæla framundan sumarfrí í 4 vikur Annars er frekar lítið að frétta Sylvía er á fullu að spila á pæjumótinu, þeim hefur gengið bara mjög vel og eiga enn eftir að spila einhverja leiki á morgun.Svo er stefnan tekin í "borg óttans" á mánudaginn og ætlum við mæðgur að dúlla okkur þar í nokkra daga.Bið að heilsa í bili </description>
Verslunarmannahelgin
      <description>Þá er verslunarmannahelgin búin og var hún bara ótrúlega fín svona fyrir utan rigninguna en sólin lét nú sjá sig á sunnudeginum.Ekki var nú mikið djammað þessa helgina, var að vinna bæði föstudags og laugardagskvöldið en skellti mér nú á Dj Palla á sunnudagskvöldið og þvílík og önnur eins stemmning sem var í húsinu held bara að þetta verði seint toppað Enda var vel yfir 500 manns á balli.Jæja það styttist í sumrfrí og guð hvað mig hlakkar til.... það er líka eins gott að það verði þokkalegt veður hérna svo að maður geti gert eitthvað skemmtilegt annað en að hanga bara heima..en annars ætlum við Sandra og Sylvía að skella okkur í sól og sæluna á Portugal í viku og hafa það gott.Jæja hef þetta ekki lengra í bili,er búin að setja inn nokkrar myndir frá sunnudagskvöldinu </description>
69 ástæður hvers vegna það er betra að vera kona
      <description>  69 ástæður hvers vegna það er betra að vera kona.  1. Þú þarft ekki að vakna klukkan sex á morgnanna til að horfa á kappakstur.2. Þú getur grátið í bíó.3. Þú þarft ekki að raka á þér andlitið.4. Þú getur gert fleira en eitt í einu.5. Þú þarft ekki að vera með punghlíf í fótbolta.6. Ef þú ert með bólur geturðu málað yfir þær.7. Þú getur afsakað allt með því að það sé sá tími mánaðarins.8. Þú getur farið í lýtaaðgerð og stært þig af því.9. Maki þinn er alltaf til í að sofa hjá þér.10. Þú gengur fyrir í þau störf sem þú og jafnhæfur karl sækja um.11. Þér er frekar fyrirgefið ef þú segir einhverja vitleysu.12. Þú kynnist börnunum þínum betur.13. Ef þú kannt frönsku geturðu orðið forseti.14. Það borgar sig fyrir þig að gerast þula.15. Þú ert falleg nakin.16. Ef þú prumpar í bíó grunar þig enginn.17. Maðurinn þinn biður þig ekki um að nota Viagra þegar þú nennir ekki að gera það með honum.18. Þér má þykja Julia Roberts og Hugh Grant sæt án þess að vinir þínir haldi að þú sért bisexual.19. Það kemur enginn með athugasemt þótt þú litir á þér hárið.20. Þú færð frí í vinnunni þegar börnin eru veik. 21. Þú mannst hvenær allir eiga afmæli.22. Þó þú sért hrifin af einhverjum strák merkir það ekki að þú viljir sofa hjá honum.23. Þú getur verið með hring í naflanum.24. Bráðavaktin (E.R.).25. Það opnar einhver sultukrukkuna ef þú getur það ekki.26. Þú lyktar vel.27. Þú þarft ekki að skipta um stöð þótt Sally Field sé á skjánum.28. Þú getur horf á þig í spegli tímunum saman.29. Ef þér gengur illa í vinnunni geturðu hætt og farið heim og eignast börn.30. Þú getur bæði gengið í kjól og buxum.31. Ef þú missir hárið og þarft hárkollu fattar það enginn.32. Þú kannt á allar þvottavélar.33. Þú getur farið staurblönk á stefnumót.34. Þú færð að segja setningar eins og: "eigum við ekki bara að vera vinir?"35. Þegar þú ert dónaleg þá fynnst kallinum það kynæsandi.36. Þú getur ferðast á puttanum.37. Þú getur smyglað brennivíni inná skemmtistaði í töksunnu þinni.38. Þú þarft ekkert endilega að fara vel með bílinn þinn.39. Þú færð mildari dóm.40. Þér er hjálpað ef það springur á bílnum.41. Ef þú ert lamin þá vorkennir fólk þér.42. Þú þarft ekki að kaupa þér eldspýtur ef þú reykir.43. Þú geur tekið vinkonu þína með á klósettið.44. Þú færð börnin ef þú skilur.45. Það eru gefin út ótal tímarit á íslandi sem eiga að gera það eitt að höfða til þín. 46. Þú getur saumað á þig föt án þess að vera talinn furðufugl.47. Þú getur eignast barn.48. Þú borgar lægri skatta en karl, (ert að vísu með lægri laun).49. Ef löggan ætlar að sekta þig ferðu bara að gráta.50. Þú ferð fyrst í björgunarbátana.51. Þú þarft ekki að vita hvað stjörnuskrúfjárn er.52. Þú getur keypt þér gsm síma í litum.53. Þú mátt keyra eins og hálfviti.54. Þú þarft ekki að sýna skilríki á skemmtistað.55. Það þykir engum skrítið þó þú hangir langtímum saman inná klósetti.56. Það eru opnaðar dyr fyrir þér.57. Þú pissar ekki útfyrir.58. Þú lifir lengur.59. Þú þolir sársauka betur.60. Þú þarft ekki að mála þak.61. Þú getur gengið í skóm sem meiða þig.62. Þegar þú ferð í frí ertu alltaf með nóg af fötum.63. Þú getur feikað fullnægingu.64. Þú getur keypt sokka á bensínstöð.65. Þú hefur enga minnimáttarkend gagnvart föður þínum.66. Þú þart ekki að skipta um útvarpsstöð þó það sé verið að spila lag með Celine Dion.67. Fólk klórar sér ekki í kynfærunum fyrir framan þig.68. Þú þarft aldrei að kaupa smokka.69. Yfirmaðurinn þinn er karl og því ferðu létt með að vefja honum um fingur þér.</description>
Köff og Öpl  
      <description>      Þetta er svo endalaust fyndið við systurnar erum búnar að hlægja mikið af þessu Mátti til með að stela þessu frá Siggu og setja hérna inn </description>
Síðustu dagar...
      <description>hafa verið annasamir Gunnhildur kom í heimsókn á klakann og við urðum nú að gera eitthvað svo að henni leiddist nú ekki. Rósa og Steini voru hérna líka í sumarfríi það var byrjað á því síðasta mánudagskvöld að skella sér í veiði á ríkisbryggjuna, við Rósa byrjuðum á því að fara á bensó og fjáresta í veiðistöng svo var farið að veiða. Steini var aflahæstur og hann hafði ekki undan að moka upp fiskunum Á þriðjudagskvöldið var farið í göngu á snjóflóðagarðanna fyrir ofan bæinn, og á miðvikudaginn var labbað í evangersrústirnar og endað á trambolininu á norðurtúninu Sem sagt nóg að gera hjá okkur. Á laugardagskvöldið bauð ég stelpunum í mat og blandaði svo þennan fína kokteil handa okkur sem að sló heldur betur í gegn eða öllu heldur glasið sem að ég gerði úr ananas.Frábært kvöld sem við verðum að endurtaka fljótlega þá er eins gott að Sandra klikki ekki á þessu.                                                                                                                                      er búin að setja inn myndir frá veiði og gönguferðunum og af matarboðinu/djamminu á laugardagskvöldið.</description>
Nokkur orð.....
      <description>fyrir Bryndísi skodaskvísu sem er farin að kvarta yfir bloggleysinu hjá mér  Ég hef hreinlega ekki nennt að setjast niður fyrir framan tölvuna og skrifa eitthvað.Annars er bara allt gott að frétta af okkur, það styttist í sumarfríið  ekki nema um 20 virkir vinnudagar í það, stefnan er að skella sér til Portó í viku og hafa það gott liggja bara í leti allan daginn á sundlaugarbakkanum, kíkka í bæinn á kvöldin og fá sér eitthvað gott að borða. Hvað ég geri í þessar 3 vikur eftir verða af fríinu veit ég ekki ennþá en eitt er víst að ég verð að hafa eitthvað fyrir stafni annars verð ég biluð á að hanga bara heima hjá mér og gera ekki neitt, kannski að maður skelli sér bara í útileigu eða eitthvað skemmtilegt Segjum þetta gott í bili   </description>
Á sólríkum sumardegi....
      <description>fyrir 10 árum fæddist hún Sylvía mín á Sjúkrahúsi Siglufjarðar.                                  .           Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða.....</description>
Sumarfrí
      <description>Ég væri sko alveg til í smá frí.. það er búið að vera frekar fámennt á skrifstofunni síðustu daga reyndar svo fámennt að ég hef bara verið ein suma dagana, en fólkið fer að týnast í vinnuna á næstu dögum sem betur fer þá getur það farið að sinna sinni vinnu sem að hefur lent á mér....Annars er bara frekar rólegt hjá okkur þessa dagana æltaði að skella mér í göngu á Siglunes um helgina en það verður að bíða betri tíma því litla skvísan á afmæli á fimmtudaginn og það verður kaffi á laugardaginn. Svo verður brunað með skvísurnar í fótboltanum á sunnudaginn á Húsavík þar sem að þær taka þátt í Íslandsmótinu í fótbolta.jæja hef þetta ekki lengra í bili ætla að reyna að fara að tengja nýja myndlykilinn og skella í eina köku......</description>